Heljuheims kennel - GiantS.is
  • News
  • The Dogs
    • ISShCh ISJCh RW-21 Ragnar de Lordship's
    • ISsCH ISJCH Sophirol Aiseo
    • ISJCH Sophirol Dulcinea Rebels At Heljuheims
  • Giant Schnauzer
    • Snyrting
  • Puppies
    • Planned litters
    • Heljuheims "A" litter
    • Heljuheims "B" litter
    • Heljuheims "C" litter
    • Heljuheims "D" litter
    • Heljuheims "E" litter
  • About us
    • Contact us

Alþjóðlegmeistarstigsýning HRFÍ

9/10/2013

0 Comments

 
Ég get ekki annað sagt en ég sé í skýjunum eftir þessa sýningarhelgi. Röskva var sýnd ásamt Zorro, Dreka og Herzir. 
Heljuheims Freki, fékk Very good og 3. sæti.
Heljuheims Muninn fékk Exellent og 2 sæti. 
Heljuheims Fenrir fékk Exellent, 1 sæti, Meistaraefni, Ísl.meistarastig og BOS. 
Mir-Jans' Campari fékk Exellent, 1 sæti, Meistaraefni, Alþjóðlegtmeistarastig og BOB. Þar með er hún orðin alþjóðlegur sýningarmeistar. 
Ég fór svo með Röskvu og strákana í afkæmahóp og fékk heiðursverðlaun á þau. Og sendi svo strákana í ræktunarhóp og fékk heiðursverðlaun. 
Í úrslitum sýningarinnar hélt okkur svo áfram að ganga vel. Við lentum í öðru sæti með Röskvu og strákana í afkvæmahópur dagsins og tókum fjórða sætið í ræktunarhópur dagsins. Röskva gerði sér svo lítið fyrir og tók fjórða sætið í tegundarhópi 2. 
Ég átti alls ekki von á þessum árangri. "Hvolparnir" aðeins 11 mánaða gamlir (eftir nokkra daga) og vantar helling uppá þroskann hjá þeim. 

Á minna frábæru hvolpaeigenda hefði þetta vissulega ekki orðið mögurleiki. Takk þið frábæra fólk fyrir þolinmæðina á sýningardaginn og sérstaklega fyrir að hugsa svona vel um skrímslin :* *knús*
0 Comments

Dreki

8/30/2013

0 Comments

 
Heljuheims Freki kom í smá snyrtingu til mín fyrir sýninguna sem er eftir nokkra daga. Ég er rosalega ánægð með það hvernig hann er að þroskast.
Picture
0 Comments

Styttist í sýningu

8/30/2013

0 Comments

 
Helgina 7-8 sept er Alþjóðameistarstigssýningi hjá Hundaræktarfélagi Íslands og verða 4 Risar sýndir. Heljuheims Freki, Muninn og Fenrir verða sýndir ásamt Mir-Jan's Campari. 
Í gær tókum við smá æfingu með strákana en planið er að sýna þá í ræktunar og afkvæmahóp á sýningunni. 

Picture
0 Comments

Erró er kominn með heimili.

8/20/2013

0 Comments

 
Erró er kominn með heimili og ætlar að flytja á Akureyri eftir nokkra daga :-)
0 Comments

Erró leitar að nýju heimili

8/14/2013

0 Comments

 
Heljuheims Sleipnir — Erró þurfti því miður að koma aftur til okkar og leitar því að nýju ástríku heimili.
Erró er rétt rúmlega 10 mánaða risaschnauzer hvolpur. Hann er góður með öðrum hundum og börnum. Hann kann að setjast og leggjast og eitthvað fleira.
Ef þú hafur áhuga á að veita Erró áatríkt og gott framtíðarheimili þá máttu endilega hafa samband við mig í síma 8651945 eða e-mail [email protected].
Picture
0 Comments

Myndir

7/20/2013

0 Comments

 
Nokkrar myndir úr göngutúrnum áðan. Auk Dakotu, Röskvu, Þjálfa og Natans þá er Dreki með en hann og Abú eru í pössun hjá okkur núna. Abú greyið fékk ekki að fara með þar sem hann er soldið mikið skotinn í tíkunum... en þær eru ekki jafn skottnar í honum :D
0 Comments

Spor

7/16/2013

0 Comments

 
Picture
Röskva lauk Spor1 prófi þar síðustu helgi. Hún lauk prófi með 70 stig (af 100) og varð í 1. sæti.
Hún var soldið lengi að fara af stað í prófinu en ég ætla að skrifa það á að hún er ekki von að hafa fólk í kringum okkur í spori og held að það hafi soldið truflað hana en þegar hún komst af stað þá vann hún mjög vel o görugglega. Þannig að fyrir næsta próf verðum við búin að æfa okkur betur að hafa fólk í kringum okkur. 
Við vorum ekki búnar að æfa mikið fyrir prófið en byrjuðum að æfa 2 vikum fyrir próf, eftir 10 mánaða pásu. Náðum að taka 3 æfingarspor fyrir prófið og hún var mjög dugleg í þeim æfingum. Næst á dagskrá er að taka spor 2 og/eða spor 1 og fá hærri einkunn þar. 

0 Comments

Brjálæðislega stolt!

6/23/2013

0 Comments

 
Ég get ekki sagt annað en að í dag er ég rosalega - brjálæðilsega stoltur ræktandi af flottum Risaschnauzer hvolpum. Fyrir utan það hvað þau eru öll yndisleg ;) þá eru þau líka flott og það hefur hann Heljuheims Fenrir - Zorro sýnt og sannað núna með stæl. 
Hann lauk sínum hvolpasýningarferli í dag með stæl! 
Hann tók þátt í Hvolpasýningu HRFÍ þar sem sýndir voru hvolpar af öllum stærðum og gerðum á aldrinum 4-9 mánaða (eldri og yngri flokkur). Hann varð Besti hvolpur tegundar, Besti hvolpur 6-9 mánaða og toppaði þetta svo og varð BESTI HVOLPUR SÝNINGAR!!!!
Ég er endalaust ángæð með eigendur hans að hafa hann í súper feld og sýnandanum fyrir að sýna hann svona æðislega! Hlakka til að sjá hvað þessi gaur gerir í framtíðinni í sýningarhringnum :D
0 Comments

Brit hundafóður

6/1/2013

1 Comment

 
Picture
Grein sem birtist í fréttablaðinu laugardaginn 1 júní. 

1 Comment

BOB og BIS hvolpur :D

5/28/2013

0 Comments

 
Þá er sumarsýning HRFÍ afstaðin og við áttum hreint frábæra sýningu. 
Fimm hvolpar úr gotinu okkar voru skráðir auk Röskvu. Röskva varð BOB og fékk nýjann titil í ættbók og varð Reykjavíkur winner 2013 :) Hún fékk líka alveg frábæran dóm en ég átti ekki von á að ganga neitt svakalega vel með hana þar sem við þurfum að rjúka á dýraspítalann með hana rétt eftir miðnætti þar sem það hafði myndast blóðvökakýli undir húð hjá henni og það þurfti að tappa afþví.
Heljuheims Hlökk - Ronja var sýnd og fékk hún heiðursverðlaun, besti tíkarhvolpur og annar besti hvolpur tegundar. 
Heljuheims Geri varð 4 besti rakka hvolpur með heiðursverðlaun, 
Heljuheims Muninn varð 3 besti rakka hvolpur með heiðursverðlaun, 
Heljuheims Freki varð 2 besti rakka hvolpur með heiðursverðlaun og 
Heljuheims Fenrir varð Besti rakka hvolpur með heiðursverðlaun, Besti hvolpur tegundar og toppaði svo allt þegar hann varð BESTI HVOLPUR SÝNINGAR :D Ég er alveg að rifna úr stolti :D
0 Comments
<<Previous
Forward>>

    Eldri fréttir

    • News 2012
    • News 2011
    • News 2010

    Fréttir:

    September 2014
    June 2014
    May 2014
    April 2014
    February 2014
    January 2014
    November 2013
    October 2013
    September 2013
    August 2013
    July 2013
    June 2013
    May 2013
    April 2013
    January 2013

    Við erum dreifingaraðili fyrir Hundahreysti hráfæðið

Powered by Create your own unique website with customizable templates.