ISSCH Mir-Jan's Campari aka "The Crazy puppie" aka Röskva er 3 ára í dag :D
Við vorum með fyrsta Heljiheimshvolpahittinginn í dag. Það var algjört æði að sjá "litlu" hvolpana aftur og sjá hvað þau voru kát og ánægð með lífið ;) Af 10 hvolpum voru 7 sem mættu plús Abú og Röskva. Það vantaði Erró (Sleipnir), Bósa (Huginn) og Lottu (Hildr). Hvo
Nokkrar myndir af deginum ;) Enjoy Heljuheims Herja og Heljuheims Fenrir voru skráð á Febrúarsýningu HRFÍ 23 febrúar síðastliðinn. Þeim gekk báðum mjög vel og fengu bæði heiðursverðlaun. Eris - Heljuheims Herja - varð besti tíkar hvolpur tegundar og Heljuheims Fenrir - Zorro - varð Besti hvolpur tegundar og varð svo Annar Besti Hvolpur Sýningar 4-6 mánaða. Ég er ekkert smá ánægð með þann árangur.
Helgina eftir var haldin Schnauzerdeildarsýning. Eris, Þruma, Lotta, Zorro og Þjálfi voru skráð á sýninguna. Þau fengu öll heiðursverðlaun. Eris varð besti tíkar hvolpurinn og Þjálfi besti rakka hvolpurinn. Þjálfi varð besti Hvolpur tegundar og svo Besti Hvolpur Sýningar 4-6 mánaða. Ég er alveg í skýjunum með þennan árangur minnar ræktunar á sýningum og vona að þetta sé bara byrjunin. Á uppskeruhátíð Schnauzerdeildarinnar 19 janúar þá voru Röskva - Mir-Jan´s Campari og Daktoa - C.I.B ISCH Svartskegga Black Pearl heiðraðar fyrir flotta árangur vinnuhunda innan deildarinnar.
Röskva var heiðruð sem stigahæsti Schnauzer í Spor og Dakota var heiðruð sem stigahæsti Schnauzer í Hlýðni1 og var jafnframt heiðruð sem stigahæsti vinnuhundur deildarinnar :) Vona að árið 2013 verði jafn gott hjá okkur í vinnu. En við stefnum á að klára vinnupakkann á Röskvu (spor og hlýðni Brons) og jafnvel taka eitt hlýðni 1 próf. Og ætlum að klára OB1 titilinn á Dakotu en hún þarf bara eitt hlýði 1 próf með 1. einkunn til að hljóta titilinn og þá getum við haldið áfram í hlýðni 2. |