Um Okkur
Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á hundum en ég eignastðis minn fyrst hunda 2002 þegar ég keypti mér Ískan setter rakkan Tarzan.
Ég hef verið meðlimur í HRFÍ síðan 2003 og hef unnið mikið starf innan félgasins síðan. Ég hef starfað á sýningum félagsins sem Aðstoðar hringvörðu, aðstoðar ritar, í dyravörslu og önnur tilfallandi störf. Ég hef unnið sem starfsmaður í Skapgerðarmati og útskrifast bráðlega sem A fígurant Ég var ein af stofnendum Pinshcer-, Mastiff-, og Fjallahundadeildar og sat sem formaður hennar í 2 ár. Ég sit núna í stjórn Schnauzerdeildarinnar og er vefstjóri deildarsíðunnar. Ég hef sótt ræktunarnámskeið, fyrirlestra í boði HRFÍ, sýningarnámskeið hjá innlendum og erlendum þjálfurum. Ég hef sótt fjöldan allan af námskeiðum með hundana mína og allir hafa þeir lokið grunnnámskeið hjá hundaskóla Gallerý Voff eða Hundalíf. |